Bráðum koma........
16.12.2007 | 23:49
Af okkur hér á Hákoni er það hels að frétt að eftir löndun í Rvík sl. miðvikudag þá urðum við veðurtepptir. Komumst ekki frá bryggju í borg vindanna fyrr en tíu tímum eftir að löndun lauk. Þá var strikið tekið í Grundarfjörðinn og vorum við komnir þangað á fimmtudagskvöldi kl 1900 þar beið okkar aflaskipið Áskell, með uþb. 600t í lestunum. Lögðumst við utaná hann í höfninni á staðnum og tók það framm undir hádegi á föstudag að dæla þessum pöddum um borð til okkar. Það mætti nú kanski bæta dæluafköstin í honum Áskeli, time is money. Aftakaveður var á Grundarfirði meðan á þessu stóð og framm eftir degi. Vorum komnir útá í vinnslu upp úr hádegi föstud. og hefur vinnslan gengið nokkuð vel. Fengum svo ábót frá Kelanum í gær um 200t og svo aftur í dag uþb. 350tonn. (allar aflatölur eru birtar án ábyrgðar og eru í flestum tilfellum hafðar eftir þriðja aðila). Þeir á Áskeli eru á leið í jóla fríið, um leið og við óskum áhöfninni góðrar heimkomu og gleðilegra jóla viljum við þakka fyrir okkur. Hækkað var upp í miðgatið eftir hádegi í dag svo kallar eru bara í góðum gír. Má til með að hafa orð á matseðli dagsins og sló Eyfjörðinn ekki af sér við hann frekar en fyrri daginn. Egg og baikon í mm, nautalundir með bernais og tilheyrandi í hádeginu og svo Arsenalborgarar í kvöldmat. Jæja komið nóg að sinni og Mari segir yfir og út.
Athugasemdir
Sælir félagar! gott að vel gengur....Þakka Golla og félgögum fyrir leikinn í gær.....! hvernig var það, glory glory United???
gangi ykkur vel...Kv....!
Nobbarinn! (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 09:19
Já það er gott að heyra að þið fáið eitthvað gott að borða,gamli klikkar ekki ´
á því.
sævar Áskelsson (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.