Allt morandi í síld.....
10.12.2007 | 07:12
Af okkur er það helst að þegar þetta er ritað þá erum við í Hvalfirðinum og vinnsla í fullum gangi. Fengum þetta fína kast eftir hádegi í Grundarfirðinum og fylltum á allar lestar og gáfum svo Margrétinni eitthvað vel á annað hundrað tonn. Flott hjá kapt. Bjögga. Í gærmorgun var farið innundir Stykkishólm, en þar fréttist af síld inn á milli skerja, mælingar hafró segja að þar séu 350 þúsund tonn. Ekki talið ráðlegt að fara á svo stóru skipi sem Hákon er þarna inn á milli. Allavega ekki í vaxandi vindi eins og var í gær.Var því snúið frá, held að það hafi verið góð ákvörðun. Verðum hér á meltunni í Hvalfirðinum næstu sólarhringa og standa vonir til að hráefnið nægi til að fylla á frystinn eða allavega langleiðina. Fært var upp í efsta gat eftir miðnætti. Bestu kveðjur frá öllum á Hákoni EA og yfir og út.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.