Loksins meira blogg...

Jæja þá koma loksins fleiri fréttir, ástæðan fyrir þögninni er að netið er búið að vera í einhverju lamasessi en vonum við nú að það sé komið til að vera.

Annars er það helst að frétta að við fengum góðan slatta gefins frá frá "litla bróðir" við mikinn "fögnuð" sumra  á miðunum í fyrradag.  Við þökkum þeim á Áskel kærlega fyrir þessa höfðinlegu gjöf. 

 Zoega virðist halda uppi góðum aga á dekkinu á Áskel og fumlaus stjórntækni hans  skilar sér greinilega skýrt og skorinort til hans undirmanna!!!

Í gær fengum við svo annan slatta gefins frá Krossey og þökkum við þeim kærlega fyrir. Ættum við því að vera komnir með nóg til að fylla frystinn hjá okkur og ætti það að klárast á þriðjudag.

Múffi Ö kveður yfir og út.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakka þér fyrir hlý orð í minn garð "Múffi Ö" Ég get sagt þér það að við erum búnir að fjárfesta í fifa og mun koma sterkur inn í sumar!!!!! ef guð lofar kv Geiri stundum kendur við gúanóveiðar

Geir F Zoega (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband