Loksins loksins loksins......
8.11.2007 | 13:58
Loksins er komið að bloggfærslu. Ástæðan fyrir þögninni er sú að aðalbloggarar áhafnarinnar eru í fríi, Golli og Marri.
En helstu fréttir eru þær að við lönduðum frosnum afurðum í höfuðborg íslenska lýðveldisins þ.31-10 og gúanói lönduðum við svo í Vestmannnaeyjum þ. 04-11. u.þ.b. 630 t. Í millitíðinni höfðum við náð afla í Selvoginum og úr því fengum við u.þ.b. 120t í frystinn og slatta í gúanó.
Í gær fengum við svo góð 600t í nótina inni á Grundarfirði og liggjum nú á meltunni inni á Breiðafirði.
Múffi Ö kveður yfir og út.
Athugasemdir
Sælir félagar!Til hamingju Magnús með fyrsta bloggið:) . Ég sé að menn draga upp hin ýmsu dulnefni (gælunöfn) þegar þeir hefja bloggfærslur. Gaman að heyra af aflafréttum er sjálfur í bænum og veitir ekki af góðri innkomu. Áfram með bloggið þetta er flott. Bkv. Marri
Marri (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 12:40
Múffi? er það ekki frændi Guffa (Fedtmule) í Andrésarblöðunum?
Á maður að skilja það þannig að leynibloggarinn sé líkur þeim karakter???
Kveðja, Kalli
Kalli (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 16:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.