Þangað leitar..............

Faxi 005Verðum væntanlega komnir með frystinn hálfann núna um miðnættið og nóg úr að moða. Þeir á Faxanum voru svo höfðinglegir að gefa okkur uþb. 300 tonn í dag og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. þá vantar nú ekki mikið af síld um borð svo við eigum fyrir fullfermi en samt eitthvað.  Vinnslan gengur bara bærilega en lentum í því í kvöld að úrsláttar pressan braut sig og þíddi um 90 mínutna töf meðan verið var að sjóða hana saman. Ef fer sem horfir þá má búast við að við verðum búnir að fylla á fimmtudag. Ekki er búið að ákveða löndunarhöfn ennþá en kemur í ljós væntanlega nógu snemma.  Kveðjur frá öllum á Hákoni, yfir og út.

                                                                                                          Faxi að dæla síld í okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband