Brælubras
27.10.2007 | 08:57
Góðan dag! Fórum út á Hala eftir að hafa verið inn á djúpi í fyrrinótt. Það hafði lítið sem ekkert lægt frá því við fórum í land. Það vill nú oft brenna við að það sé betra veður í myrkrinu en í dagsbirtunni. Köstuðum trollinu seinnipartinn í gær og drógu frekar skamman tíma enda lítið lóð og bræla. Þegar híft var bilaði vírastýri á annari togvindunni en með samvinnu og samstilltu átaki áhafnar tók tiltölulega skamman tíma að kippa því í liðinn. Erum nú komnir á síldarslóðir skammt undan Grundarfirði og vonumst við til að það fari að fiskast, höfum ekki fengið bein úr sjó síðan á miðvikud. sl.
Golli það eru smá skilaboð frá Inga Hill, að þú eigir að fara að vara þig. Nýji fifa leikurinn er og verður "Heimavöllur" Hillarans. Heyrst hefur á göngunum að Guðjón skipstjóri hafi haft þau orð um Gollann að hann vilji ekki sjá hann um borð. Allavega ekki meðan hann er með bátinn. Þannig er það nú Golli minn, en eins og þú veist eru allar gangafréttir sannar. Marri vonar að allir gangi á guðs vegum og eigi góðan dag og segir yfir og út.
Athugasemdir
Það er fínt mér gengur best á útivöllum
, Gaui litli segir þetta ekki þegar ég kem með vel reyktan og feitan frampart af einni veturgamalli Lómartjarnarrollunni.
Gollinn biður að heilsa.
Áhöfnin á Hákon EA-148, 27.10.2007 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.