Góða gesti ber að garði
24.10.2007 | 19:20
Lögðumst að bryggju í Bolungavík um klukkan sex í morgun og var þegar hafist handa við löndun. Gekk nú bara bærilega að dæla gúanóinu í land og kom ekkert nýtt uppá í þeirri framkvæmd. En það bar til tíðinda seinna um morguninn þegar 6 bekkur grunnskóla Bolungavíkur kom í heimsókn. Krakkarnir ásamt kennara skoðuðu skipið hátt og lágt, birjuðu í vélarrúminu og enduðu í brúnni hjá Guðjóni (kallinum), það mátti greina bæði undrun og ánægju í svip þeirra. Takk fyrir komuna krakkar ánægjan var líka okkar að fá ykkur í heimsókn. Landfestar leystar á síðdegisflóðinu og sigldum við út frá Bolungavík á slaginu 17:00. Gott í bili, yfir og út.
Athugasemdir
Heilir og sælir sjómenn.
Við viljum þakka enn og aftur fyrir okkur! Það var frábært að fá að koma um borð hjá ykkur og sjá aðbúnaðinn í svona stóru skipi. Það er enn verið að tala um tölvurnar, stærðina á svona skipi, Liverpool og Arsenal mennina, herbergin, íþróttaaðastöðuna svo fátt eitt sé nefnt.
Við höfum ykkur í huga okkar. Við vonum að það fiskist vel! Með kveðju frá Bolungarvík, 6. bekkur.
6. bekkur Grunnskóla Bolungarvíkur (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.