
Ætlaði að hafa fyrirsögnina "svo bregðast krosstré". En það er nú ekki hægt að skrifa háttarlag síldar og veðurs á kallinn. Engin síld sást í dag og svo brældi á okkur og spáin ekki góð fyrir sjóara. Ákveðið að landa hliðarafurðinni, jú nefnilega síldarafskurði, í bræðslu. Þannig að við erum á leið til Bolungarvíkur með uþb. 400t og verðum þar með morgni. Það er búinn að vera nokkur veltingur á okkur og ef þið skoðið myndina og berið skipið við sjóndeildarhringinn má gera sér í hugarlund veltinginn. Veltan tekur 5-8 sek. enda voru flestir á fótum (báðar vaktir) því það er ekki gerningur að skorða sig í kojunni. Segjum þetta gott í bili, yfir og út.
Athugasemdir
Shjipp ohojj
Bestu kveðjur úr rokinu í Kópavogi
Kjartan Pálmarsson, 24.10.2007 kl. 01:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.