Það er vindur þegar hann blæs
20.10.2007 | 23:59
Jæja þá er komið að pistli dagsins. Komum á síldarmiðin í morgun sem eru í túnfæti þeirra Grundfirðinga. Það blés heldur hressilega á okkur en kallinn í brúnni lét það ekki stoppa sig og kastaði nótinni laust fyrir 11. Og það stóð ekki á því dældum uþb. 500 tonnum og má segja að þetta hafi verið sannkallaður happadráttur hjá kallinum, sem fær mann reyndar til að hugsa um annað en förum ekki út í það. Vinnslan að komast í fullan sving og mikið að gera hjá þeim VMK-köllum að stilla inn flökunarvélarnar fyrir heimasíldina. (er smærri en frænkur þeirra í Norge). Nú þegar fer að hausta og kólna í veðri kemur sú árvissa umræða um að fá hita á kallana í vinnslunni en það verður að segjast að það er bölvuð vosbúð á þeim þegar kólna fer í veðri, þeir eiga samúð mína alla. Kanski verður gerð bót á þeim málum í vetur
. Segjum þetta gott í bili og Marri segir yfir og út.

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.