Fullir já ég sagði fullir

Halelúja já það hafðist að berja í dallinn og eru við með yfir 700 tonn af fallegum ferskum síldarafurðum sem menn berjast um að kaupa þessa dagana. Þannig að nú standa yfir þrif að hætti Möllersins og þeir sem þekkja til þá eru það engin leigaraþrif. Við verðum á nobbaranum á aðfaranótt miðvikudags og gerum svo klárt fyrir heimasíldina með því að taka svörtu drussluna um borð þ.e. nótina en jæja Möllerinn nappaði mig við að skrifa best að halda áfram að þrífa bið að heilsa og koma með yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djöfulsins lúxus fyrir ykkur að fá að komast aðeins á Naflann:) Forréttindi!:) Flottur túr hjá ykkur,og nú er bara að massa nótina! Kv Nobbarinn!

Nobbarinn! (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband