Ingólfur Jóhannsson skrifar sunnudagshugvekju
14.10.2007 | 09:22
Ef spámaður eða draumamaður rís upp meðal yðar og boðar þér tákn eða undur og táknið eða undrið rætist, það er hann hafði boðað þér og sagt um leið: vér skulum snúa oss til annarra guða (þeirra er þú hefir eigi þekkt), og vér skulum dýrka þá. Dýrkaðu Drottinn guð frelsara yðar og varðveitu í hjarta þínu.
Þetta var sunnudagshugvekjan og er hún að festa sig í sessi hér á síðunni, menn virðast finna þennan umtalaða innri frið. En annars er það að frétta að við erum komnir með í dallinn og erum umþabil hérumbil marsibil að leggja af stað og gætum verið á Norðfirði seint á þriðjudag ef allt heppnast og veðrið verði í lagi. Annars er lítið að frétta Pési var með beikon og egg í morgunmat og tóku menn hraustlega á því alla vega sumir hverjir. En við segjum guð verði með þér og leggjum áherslu á yfir og út.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.