Pési seigur

O já hann Pési kokkur stóð svo sannarlega fyrir sínu í dag haldið þið ekki að kallinn hafi boðið upp á LÓMARTJARNARLÆRI  (ekki af þeim systrum samt það hefði verið í marga mata) og var berness og allur pakkinn með, enda svaf maður sem ungabarn með fullan maga af góðgæti já við gefum Pésa Smile  fyrir lærið. En svo við snúum okkur að aflabrögðum þá fyllum við afturlestina í nótt og eigum við afla eitthvað fram á daginn, þannig að við erum að tala um að það vantar aðeins herslu munin. Það styttist í sunnudaginn og menn eru strax farnir að spyrja mig út í sunnudagshugvekjuna hvernig ég muni háta henni en það er ekkert gefið upp ég er búin að læra faðirvorið þannig að þetta lítur allt vel út. vonum að strakarnir hans Badda Böder standi sig í nótt og hafi tækin vel jöfn þegar við mætum á vakt í fyrramáli jæja best að fara og fá sér kók og prins eins og í kartöflunum í den. Yfir og út.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband