Bara vel

Já við segjum að hætti Dabba bara vel, við erum komnir með 370 tonn í lest og eigum nægan afla til að vinna, þannig að menn hafa séð það svartara. Það er rétt hjá þér Guðni að við verðum að vera góðir við kokkinn enda erum við það en það var nú alltaf sagt í kartöflunum í gamla daga að menn uppskera eins og þeir sá. Jú við verðum komnir með Alla í land tveim dögum fyrir ferðina þannig að það gengur upp hjá Húsavíkurtröllinu. Starfsmenn síðunar vilja svo vota vilta tryllta Villa samúð okkar vegna borgarstjórastólsins og gott fólk munið x-b og allir vegir færir. yfir og út.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að fylgjast með hvað þið eruð að bralla þarna :-)

Skilaðu kveðju fyrir mig til Sigga vélstjóra.

Svo  er hér einn helv.... góður :-)

Það voru einu sinni hjón sem fóru á hótel til að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmælið sitt.

Fengu þau sér gott að borða og fóru svo upp í rúm til að endurupplifa brúðkaupsnóttina.

Eitthvað fannst þeim gamli vinurinn vera slappur og linur, svo hann laumaðist afsíðis og batt við hann reglustiku.

Fór hann við svo búið upp í rúm til sinnar gömlu og sinnti sínu hlutverki og var konan hæstánægð með gamla sinn.

Daginn eftir synti annar eggjastokkurinn til hins og sagði: "Já, margir hafa nú komið við hér um dagana en aldrei hafa þeir fyrr komið á líkbörum!"

Rúnar Andrew Jónsson (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband