Gat nr 2 ekki misskilja

Jæja þá eru strákarnir búnir að hækka í gat nr 2 og var það gert fyrir kvöldmat, þannig að það er rífandi gangur á þessu og nægur afli til að vinna, þannig að það tikkar hraustlega inn á menn nema þá sem eru með frosin kerfi heima! Við þökku Dabba og Matta fyrir athugasemdirnar og viljum við starfsmenn síðunar benda Dabba á að byrja að taka til í  garðinum heima hjá sér þ.e. hjá man utd. Annars er lítið að frétta nema að líklega verður landað í Noregi og jú Ragnar fékk sér vinnu í fríinu og vinnur hann nú við ráðgjöf hjá parket og gólf, Möllerinn er nokkuð rólegur þannig að allir eru vinir við biðjum að heilsa yfir hafið og segjum yfir og út. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

gott að sjá að gamli sé loksins farinn að veiða eitthvað, var farinn að hallast að því að þessar veiðisögur hans væru uppspuni frá rótum :). gangi ykkur annars bara allt í haginn.

einar hinn yngri (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 22:51

2 identicon

Sælir félagar! Sé að gollinn er kominn um borð, húrrrrrrrrrrra. Gaman að sjá að vel gengur vona að það verði framhald á því:) Það fannst víst ekkert almennilegt að Borta, hundlélegur sjúklingur. Bestu kveðjur, Marri.

hilmar (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband