Tími til að tengja!

Jæja nú fyrst er tími til að blogga, það er búið að vera svo mikið að gera við að sofa og borða, en nú eru kallarnir vonandi að fara að berja á síldinni. Það hefur verið tekið upp samstarf við Guðmund ve um partroll og er von á þeim hér við Janmayen svæðið mjög fljótlega. fyrsta lag er sigrað í lestinni og vonum við að restin verði tekin í einum rikk. Annars eru litlar fréttir héðan um borð það er ótrúlegt hvað menn halda geðheilsunni í svona ástandi og hefur námskeiðið sem Geir Zoega hélt hér í síðasta túr örugglega mikið að segja, en það nefndist HINN STÖÐUGI MAÐUR. Það var haldinn dúndur afmælisveisla í gær en þá átti Þorbjörn (Tobbi) afmæli og lét Þórður kokkur sig ekki muna um að snara einu lambalæri fram á borð við mikinn fögnuð manna, en skipstjórinn var eins og gamall labrador hundur í gærkvöldi hann nagaði bein að mikilli innlifun, að vísu hef ég aldrei séð sköllóttann labrador hund en skiptir ekki máli.  við starfsmenn síðunar sendum Tobba okkar bestu afmæliskveðjur. yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

  Ég vill óska honum Þorbirni, Tobba hjartanlega til hamingju með afmælið og síðast en ekki síst með það að heita svona frábæru nafni. Það eru ekki margir í Íslandi sem bera jafn flott nafn, en á móti magninu koma gæðin.

 KV. Þorbjörn Víglndsson, Tobbi Villa á Guðmundi VE. 

Þorbjörn Víglundsson (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband