Maður mánaðarinns er?

            Loksins loksins er hægt að skrifa hver er maður mánaðarins, það voru mikil átök í þessari kosningu og má segja að hún hafi komið gríðarlega á óvart, en sá sem bar sigur úr bítum þennan mánuðinn er enginn annar en Ragnar nokkur Guðjónsson og fær hann þennan titil fyrir frábær vinnubrögð góða mætingu á vaktir, góða framkomu gagnvart starfsfélögum, góðar sögur frá útlandinu og síðast og ekki síst þá er hann að róa fyrir menn og að taka menn upp af götunni og leifa þeim að gista þetta er alvöru maður, það sem Ragnar fær í verðlaun fyrir þennan titil er einn síldarkassi og ræður hann hvort það er flökuð eða heilfryst síld til hamingju RaggiCool . Þessi mynd minnir nú á suma á millidekkinu nefnum enginn nöfn. En annars er það að frétta að við erum við það að sigra fyrsta lag en því miður er enginn afli um borð til að vinna þannig þá er bara að horfa á fótbolta að hætti Billa Gunn. Ekki hefur borið meira á afbrigðilegri hegðun skipstjórans. Sá sem þetta skrifar lenti í skemmtilegri reynslu í kvöld en þá stíflaðist brunnur fram á millidekki og þurfti að hafa samskipti við yfirvélstjóra vegna þess og gengu samskipt snuðrulaust fyrir sig já batnandi mönnum er best að lifa, lifi ÖfjörðDevil . Við starfsmenn síðunnar viljum svo senda okkar bestu kveðjur í land og þá fær ástríkur (Pétur E) Heartsérstakkar kveðjur með von um góðan bata jæja tetta geng ekki . yfir og út.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband