Fréttir dagsins

Jæja þá eru fréttir dagsins og eru þær helstar að menn eru að fá í bakið og rassinn af allri setu og legu hér á bekkjunum, starfsmaður mánaðarins verður valinn á morgun og verður það fært hér inn um leið og úrslit verða ljós þeir sem koma sterklega til greina eru sambílingarnir Jóhann Bátur Helgasson og Ragnar Bankok Bonosson einnig er Dabbi Drullumix nefndur og að ógleymdum geitungnum Ægi OD svo eru 3-4 nöfn nefnd og allt eru það þungaviktarmenn hér um borð t.d. Magnús Öfjörð og Þórður Atlas. í dag hefði fyrverandi skipstjórinn okkar Oddgeir Jóhannsson átt afmæli og sendum við fjölskyldu hans okkar bestu kveðjur.  Eitthvað fer aflaleisið í skapið á skipstjóranum okkar og er hann farinn að leita á menn hann byrjaði í fyrradag með því að ráðast á Ingólf begic og reyndi Guðjón að girða niðrum hann en sem betur fer hafði hann ekki erindi sem erfiði enda Ingólfur mikill maður að burðum en menn töluðu um að þarna hefði munað 100 kg, svo í gærkveldi réðist captaininn á Jóa Tus.. og reyndi það sama en gekk ekki svo er það spurningin hvað gerir kallinn í kvöld hvern tekur hann, þeir sem eru líklegir eru ´'Arni orhaus, kokkurinn og Gunnþór Ingimar þessir menn hafa allir horft á mikið af náttúrlífsmyndum og vita hvernig á að bregðast við svona löguðu já Geir zoega þú ert ekki einn um meinta misnotkun Guðjóns. Yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband