Dýfðum í og fengum.

Sælt veri fólkið.

 Lönduðum í Neskaupstað síðastliðin fimmtudag um 700 t af frosinni afurð. Fórum út aftur um kvöldið og dýfðum í um nóttina og fengum -  afla um borð upp úr hádeginu daginn eftir. Hífðum svo aftur um miðnættið í gær og fengum þá í 2-lestarnar. Síldin er heilfryst þessa dagana til að drýgja kvótann. Liggjum nú á meltunni og frystum eins enginn sé morgundagurinn.

"Poooolararnir" um borð eru sérlega   hamingjusamir í dag eftir sigur þeirra manna á Arsenal. Heyrðust strax raddir um að Liverpool mundi klárlega vera í toppslagnum í vetur. Hver veit?

Hinu árlega Oddgeirsmóti í golfi var víst frestað í síðustu inniveru vegna anna hjá styrktaraðilum. Vonandi verður mótið haldið í næstu inniveru þrátt fyrir annasama daga hjá styrktaraðilum.

Gullkornið er að þessu sinni:"Stórar sálir hafa vilja, veikar sálir eiga sér óskir."

Múffi biður að heilsa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband