Múffi bakar.
21.9.2010 | 20:48
Vélstjórar hafa ekki setið auðum höndum í aflaleysinu að undanförnu. Múffi hefur verið að föndra við súkkulaðikökubakstur í fína Westfaliaofninum sínum.
Honum hefur tekist undanfarna viku að galdra fram svona fína köku á minna en sólarhring, geri aðrir betur!
Hann segir að gott hráefni sé nauðsynlegt, þ.e. þessi fína svartolía frá Tóta oliufursta á Norðfirði. Enda biðjum við kærlega að heilsa honum! Að auki setur Múffi í kökuna mikla hlýju og kærleik.
Af myndinni að dæma virðist hann vera ánægður með afraksturinn.
Kalli
Athugasemdir
Nei, er hann aftur farinn að baka þessar vondu Múffa-muffins kökur, blessaður kallinn!
Baráttukveðja
Matti
Matti (IP-tala skráð) 22.9.2010 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.