Mjór er...........
6.9.2010 | 06:10
Sælt veri fólkið! Þá fer nú að nálgast vikuna síðan við fórum frá Neskaupstað eftir síðustu löndun. Fórum heljarinnar leiðangur norður í Jan Mayen lögsöguna og þar austurum, svo suður smuguna og loks austur á heimamið. Tilgangur ferðarinnar var sá helstur að hvíla mannskapinn eftir gengdarlausa makrílvinnslu í allt sumar:). Nei, að öllu gamni slepptu þá var verið að leita af síld en ekki fannst neitt í veiðanlegu formi. Sigrum væntanlega fyrsta lagið í frystinum í dag. Ég veit að ég má skila kveðjum frá okkur öllum til eigin-og ástkvenna, megi þið hafa það sem best. Og með því segir Marri, yfir og út.
Es.
Vini sína einskis mat
upp á fjall hann strekkti
meingallaðra mannrassgat
maður varla þekkti.
Höf. ók
Spakmæli: Þegar við sjáum galla í fari annarra skulum við reyna að bæta okkur sjálf
Athugasemdir
góðan daginn
gaman að heyra fra ykkur og takk fyrir kveðjuna :-)
gangi ykkur vel og farið varlega.... hlakka til að fá ykkur heim..................:-)
kv
Rakel
rakel (IP-tala skráð) 6.9.2010 kl. 13:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.