Færsluflokkur: Bloggar

Gat nr 2 ekki misskilja

Jæja þá eru strákarnir búnir að hækka í gat nr 2 og var það gert fyrir kvöldmat, þannig að það er rífandi gangur á þessu og nægur afli til að vinna, þannig að það tikkar hraustlega inn á menn nema þá sem eru með frosin kerfi heima! Við þökku Dabba og Matta fyrir athugasemdirnar og viljum við starfsmenn síðunar benda Dabba á að byrja að taka til í  garðinum heima hjá sér þ.e. hjá man utd. Annars er lítið að frétta nema að líklega verður landað í Noregi og jú Ragnar fékk sér vinnu í fríinu og vinnur hann nú við ráðgjöf hjá parket og gólf, Möllerinn er nokkuð rólegur þannig að allir eru vinir við biðjum að heilsa yfir hafið og segjum yfir og út. 

Loksins blogg!

Jæja þá fá þeir frétta þyrstu í landi loksins smá fréttir, við erum að verða komnir með fyrsta lag í lestina, veiðin er búin að vera með hreinum ágætum við erum hér í noskri lögsögu og flestir nokkuð glaðir hér um borð. Fréttir frá borði Addi P og ´'Arni A eru að reyna að komast að því hvað er að hjá liverpool og látu við vita um leið og fréttir berast af því máli enda verður Benitez að fá að vita hvað hann á að gera,  Guðni kokkur nostrar við okkur í mat ekki víni og þeir félagar í hólum knoll og tott eru að fiska þannig að það eru allir vinir, við skulum svo reyna að færa inn frettir á hverju miðnætti sem eftir er túrsins en golli jó komin í bloggið jæja yfir og út p.s. Tobbi votum þér samúð okkar vegan FH liðsins ættir kannski að fá Adda P og  ''Arna til að taka þetta út jæja bæjó í bili ekki stebbi bæjó samt.

Landleið !!!!

Við erum komnir á landleið með fulla frystilest og góðan slatta í bræðslu og verðum á Nes  á þriðjudags morgun .,.,

Meiri fréttir

Við hækkuðum upp í efsta gat í morgun í lestinni og erum við þá komnir með 4 lög  í lestina..,., 

Fréttir !!

Jæja þá er nú víst kominn tími á blogg frá okkur, en allt blogg hefur legið niðri síðan aðal bloggarinn fór í frí.,  Hann þurfti að fara í land til að taka þátt í keppninni  " flottasta yfirvara skeggið "  og vonandi hefur honum gegnið vel í þeirri keppni enda búinn að leggja mikið á sig strákurinn og safna í marga mánuði !!!!!!          Annars eru helstu fréttir af okkur að það var nú  rólegt fyrstu dagana, lentum í brælu og aflaleysi og lítið að gera hjá okkur, nema helst afleysinga kokknum ,alltaf nóg að gera hjá honum og stendur hann sig með mikilli prýð drengurinn og á alveg skilið hrós fyrir .,        En eftir að við komum hér í Norsku lögsuguna er allt að gerast hjá okkur og við komnir á fullt skrið í veiðum og vinnslu og vorum að hækka upp um fyrsta gat í morgun og loka lagi númer 2 í lestinni og vonandi heldur þetta bara svona áfram hjá okkur!!!


Hvar er draumurinn ?

Já hvar er draumurinn ? segir í góðum texta með stefáni og félögum menn eru að tala um að þessi draumur sé um borð í Hákoni ea, haldið þið ekki að strákarnir séu með vinnslu í gangi og annað lag að sigrast. Við þökkum þeim eyjamönnum kærlega fyrir þennan góða pakka sem við fengum frá þeim síðustu nótt þetta var það besta sem við höfum fengið lengi og grunar mig að þessi Tobbi sem skirfaði í athugasemdir við síðasta blogg hafi haft hönd í bagga og græjað þetta fyrir okkur en fyrir þá sem ekki vita að þá gáfu þeir á Guðmundi okkur fulla 3 lest af spriklandi afurðum og kunnu við þeim bestu þakkir fyrir. Annars er lítið að frétta af okkur leigggurunum hér um borð kosturinn að verða þunnur og sjoppan er sigruð fyrir utan nokkur zoo dýr. Jæja við biðjum að heilsa liðinu í landi og segjum yfir og út.


Tími til að tengja!

Jæja nú fyrst er tími til að blogga, það er búið að vera svo mikið að gera við að sofa og borða, en nú eru kallarnir vonandi að fara að berja á síldinni. Það hefur verið tekið upp samstarf við Guðmund ve um partroll og er von á þeim hér við Janmayen svæðið mjög fljótlega. fyrsta lag er sigrað í lestinni og vonum við að restin verði tekin í einum rikk. Annars eru litlar fréttir héðan um borð það er ótrúlegt hvað menn halda geðheilsunni í svona ástandi og hefur námskeiðið sem Geir Zoega hélt hér í síðasta túr örugglega mikið að segja, en það nefndist HINN STÖÐUGI MAÐUR. Það var haldinn dúndur afmælisveisla í gær en þá átti Þorbjörn (Tobbi) afmæli og lét Þórður kokkur sig ekki muna um að snara einu lambalæri fram á borð við mikinn fögnuð manna, en skipstjórinn var eins og gamall labrador hundur í gærkvöldi hann nagaði bein að mikilli innlifun, að vísu hef ég aldrei séð sköllóttann labrador hund en skiptir ekki máli.  við starfsmenn síðunar sendum Tobba okkar bestu afmæliskveðjur. yfir og út.


Maður mánaðarinns er?

            Loksins loksins er hægt að skrifa hver er maður mánaðarins, það voru mikil átök í þessari kosningu og má segja að hún hafi komið gríðarlega á óvart, en sá sem bar sigur úr bítum þennan mánuðinn er enginn annar en Ragnar nokkur Guðjónsson og fær hann þennan titil fyrir frábær vinnubrögð góða mætingu á vaktir, góða framkomu gagnvart starfsfélögum, góðar sögur frá útlandinu og síðast og ekki síst þá er hann að róa fyrir menn og að taka menn upp af götunni og leifa þeim að gista þetta er alvöru maður, það sem Ragnar fær í verðlaun fyrir þennan titil er einn síldarkassi og ræður hann hvort það er flökuð eða heilfryst síld til hamingju RaggiCool . Þessi mynd minnir nú á suma á millidekkinu nefnum enginn nöfn. En annars er það að frétta að við erum við það að sigra fyrsta lag en því miður er enginn afli um borð til að vinna þannig þá er bara að horfa á fótbolta að hætti Billa Gunn. Ekki hefur borið meira á afbrigðilegri hegðun skipstjórans. Sá sem þetta skrifar lenti í skemmtilegri reynslu í kvöld en þá stíflaðist brunnur fram á millidekki og þurfti að hafa samskipti við yfirvélstjóra vegna þess og gengu samskipt snuðrulaust fyrir sig já batnandi mönnum er best að lifa, lifi ÖfjörðDevil . Við starfsmenn síðunnar viljum svo senda okkar bestu kveðjur í land og þá fær ástríkur (Pétur E) Heartsérstakkar kveðjur með von um góðan bata jæja tetta geng ekki . yfir og út.

Fréttir dagsins

Jæja þá eru fréttir dagsins og eru þær helstar að menn eru að fá í bakið og rassinn af allri setu og legu hér á bekkjunum, starfsmaður mánaðarins verður valinn á morgun og verður það fært hér inn um leið og úrslit verða ljós þeir sem koma sterklega til greina eru sambílingarnir Jóhann Bátur Helgasson og Ragnar Bankok Bonosson einnig er Dabbi Drullumix nefndur og að ógleymdum geitungnum Ægi OD svo eru 3-4 nöfn nefnd og allt eru það þungaviktarmenn hér um borð t.d. Magnús Öfjörð og Þórður Atlas. í dag hefði fyrverandi skipstjórinn okkar Oddgeir Jóhannsson átt afmæli og sendum við fjölskyldu hans okkar bestu kveðjur.  Eitthvað fer aflaleisið í skapið á skipstjóranum okkar og er hann farinn að leita á menn hann byrjaði í fyrradag með því að ráðast á Ingólf begic og reyndi Guðjón að girða niðrum hann en sem betur fer hafði hann ekki erindi sem erfiði enda Ingólfur mikill maður að burðum en menn töluðu um að þarna hefði munað 100 kg, svo í gærkveldi réðist captaininn á Jóa Tus.. og reyndi það sama en gekk ekki svo er það spurningin hvað gerir kallinn í kvöld hvern tekur hann, þeir sem eru líklegir eru ´'Arni orhaus, kokkurinn og Gunnþór Ingimar þessir menn hafa allir horft á mikið af náttúrlífsmyndum og vita hvernig á að bregðast við svona löguðu já Geir zoega þú ert ekki einn um meinta misnotkun Guðjóns. Yfir og út.


Dauði og djöffull

Já menn eru að byðja um fréttir hér er bara dauði og djöfful, ekkert að hafa bara leigggaraskapur í gangi. Dabbi hefur náð óttrúlega jöfnum tækum. en svo við snúum okkur að aðalmálinu hvað er komið í lest og ekki hlæja því ekki er komið fyrsta lag í afturlest. Annars er það frétta af mannskapnum að kokkurinn er að reyna að vera þessi stöðugimaður, ´'Arni er mjög ánægður með sigur Liverpool í kvöld og gengur spertur um gangana. En eins og leikritið segir síldin kemur og síldin fer það er staðreind. jæja yfir út með von um batnandi gang á þessu.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband